Nýr Ram mættur til starfa hjá Bílabjörgun

Þegar bjartast var á sumrinu urðu ferðirnar á fjöllinn hvað flestar til að hjálpa til við hin ýmsu vandamál ferðalanga, þá er betra að tækin séu fær í þau átök sem þarf á þessa fjallaslóða sem víða eru..  

Bjartsýni og birtan var þess valdandi að við létum verða af því að láta sérsmíða fyrir okkur Dodge Ram í þetta verkefni og verkefnin sem upp koma allt árið þ.e.a.s gera á honum töluverðar breytingar til að hann félli vel til starfsins jaft yfir sumarmánuði og í vetraraðstæður.

Breyting í stórum dráttum, gjörð af Ísband og samstarfsaðilum.

- Fram og afturstuðari úr þykku stáli / Spil að framan  / úrhleypibúnaður / 37" dekk / Lofdæla / Ljósabúnaður við hæfi / Verkfærahólf / og liturinn okkar -